„Við erum búnar að syngja á þorrablótum meðal annars en ákváðum að ganga skrefinu lengra og gerðumst fatafellur, en innan siðsamlegra marka,“ segir Rakel Magnúsdóttir , annar helmingur HARA .

„Við erum búnar að syngja á þorrablótum meðal annars en ákváðum að ganga skrefinu lengra og gerðumst fatafellur, en innan siðsamlegra marka,“ segir Rakel Magnúsdóttir , annar helmingur HARA .

„Við vorum náttúrlega í fötum innan undir þegar við tókum strippatriðið og það virkaði rosalega vel. Maður þarf jú alltaf að prófa eitthvað nýtt. Þetta var ekki dónalegt og mikið hlegið. Um helgina syngjum við á árshátíð Félags eldri borgara á Suðurnesjum en ég hugsa að við tökum ekki fatafelluatriðið þar.“