Smakkið Helgi Benediktsson og Maríus Helgason kynntu í tilheyrandi klæðnaði ilmandi Húsavíkurhákarlinn fyrir sunnanmönnum í Fjarðarkaupum.
Smakkið Helgi Benediktsson og Maríus Helgason kynntu í tilheyrandi klæðnaði ilmandi Húsavíkurhákarlinn fyrir sunnanmönnum í Fjarðarkaupum. — Árvakur/Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.

Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur

join@mbl.is

„Þetta er mikið lostæti,“ sögðu þeir Helgi Benediktsson og Maríus Helgason, vel gallaðir að sjóarasið, er þeir buðu viðskiptavinum Fjarðarkaupa í Hafnarfirði upp á ilmandi Húsavíkurhákarl á sjálfan bóndadaginn.

Óhætt er að segja að Húsavíkurhákarlinn hafi fyrir margt löngu „slegið í gegn“ hjá fastagestum Helga nokkurs Héðinssonar í Helguskúr, sem er að finna fyrir neðan bakkann við hlið veitingahússins Gamla bauks á Húsavík. Kunnugir segja þó að hróður hákarlsins hafi borist um Þingeyjarsýslur þverar og endilangar því margir hafi fengið beitu hjá Helga í gegnum tíðina. Hann hefur þó löngum verið talinn lítill sölumaður og því mun viljugri til að gefa en selja.

Helgi, sem verður áttræður á árinu, er enn að veiða og verka hákarl og fékk ásamt Óðni Sigurðssyni fimmtán hákarla á síðasta ári.

Tengdasonurinn Helgi Benediktsson og sonurinn Maríus Helgason hafa nú unnið að því að koma þessari afurð Helga á höfuðborgarsvæðið svo brottfluttir Þingeyingar sem og aðrir sunnanmenn fái líka notið þessa lostætis, sem selt verður sem Húsavíkurhákarl í versluninni Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, enda er góður hákarl auðvitað bráðnauðsynlegur í öllum góðum þorraveislum, að sögn Helga.