Í kvöld mun hljómsveitin Benny Crespo's Gang koma fram á tónleikum á Dillon þar sem aðgangur er ókeypis.

Í kvöld mun hljómsveitin Benny Crespo's Gang koma fram á tónleikum á Dillon þar sem aðgangur er ókeypis. Söngkona þeirra, Lay Low, hefur verið upptekin í leiksýningu á Akureyri og því lítið um tónleikahald síðan á útgáfukonsert þeirra í desember en heilmikið er að gerast í febrúar, og heldur því kynning á nýútkominni plötu þeirra áfram. Helgi Rúnar, söngvari og gítarleikari, segir sveitina byrjaða að vinna næstu plötu og fólk muni taka eftir örlítið breyttum tóni hjá sveitinni. Lögin séu þó enn í vinnslu, en ef vel gangi að æfa verði þau ef til vill frumflutt í lok mánaðarins.

Upplýsingar um bókaða tónleika má finna á síðunni myspace.com/bennycresposgang. re