Flakkari Popparinn hefur verið á faraldsfæti undanfarin ár. Hér er hann staddur á bandarískum herflugvelli í Japan í mars á síðasta ári.
Flakkari Popparinn hefur verið á faraldsfæti undanfarin ár. Hér er hann staddur á bandarískum herflugvelli í Japan í mars á síðasta ári. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ÞRÁTT fyrir ásakanir um barnamisnotkun og þrálátar fréttir af gjaldþroti hyggst tónlistarmaðurinn Michael Jackson snúa aftur á þessu ári. Og það með ekki aðeins eina plötu, heldur tvær.

ÞRÁTT fyrir ásakanir um barnamisnotkun og þrálátar fréttir af gjaldþroti hyggst tónlistarmaðurinn Michael Jackson snúa aftur á þessu ári. Og það með ekki aðeins eina plötu, heldur tvær. Fyrri platan er 25 ára afmælisútgáfa á söluhæstu plötu allra tíma Thriller (104 milljónir eintaka seld) en sú síðari er plata með glænýjum lögum sem Jackson hefur unnið að á undanförnum árum. Á meðal þeirra sem koma að Thriller 25 (útgáfudagur er 11. febrúar) með Jackson sjálfum má nefna will.i.am úr Blackeyed Peas, Kanye West og Akon en bæði will.i.am og Akon komu að gerð nýju plötunnar sem áætlað er að komi út nokkrum vikum eftir útgáfudag Thriller 25 .

Mikið gengið á

Þessar fréttir eru eflaust mörgum Jackson-aðdáendum gleðiefni því popparinn hefur ekki sent frá sér nýtt lag í um fimm ár. Skyldi engan undra þar sem Jackson hefur verið á hálfgerðum hrakhólum síðustu ár eða allt frá fyrstu ásökunum um að hann misnotaði börn á búgarði sínum í Kaliforníu. Jackson var sýknaður af öllum ásökunum en flutti fljótlega til arabaríkisins Bahrain í kjölfar sýknunar. Talið var að þarlent fyrirtæki Two Seas myndi gefa út næstu plötur popparans en nú virðist sem upp úr því samstarfi hafi slitnað. Jackson hefur nú stofnað nýtt fyrirtæki, The Michael Jackson Company Inc. sem mun sjá um öll hans fjár- og útgáfumál.

Áhyggjur af sölu

Eins og áður sagði kemur 25 ára afmælisútgáfa af Thriller-plötunni út nú í febrúar en það skýtur svolítið skökku við að í ár eru í raun 26 ár frá því að platan kom út. Þykir þetta bera vott um ruglinginn sem sagður er allsráðandi í kringum Jackson og að platan hafi í raun átt að koma út í fyrra. Af því hafi hins vegar ekki orðið vegna frestunar- og fullkomnunaráráttu popparans. Þegar hafa tvær smáskífur af plötunni verið settar í sölu á netinu, „The Girl is Mine“ og „Wanna be Startin' Something“. Hvorugar hafa selst vel og það segir e.t.v. einhverja sögu að hingað til hafa þessar smáskífur ekki ratað í útvarp. Fjárhagskröggur Jacksons hafa verið töluverðar undanfarið og eru margir farnir að búa sig undir annað fjárhagslegt áfall í kjölfar útgáfunnar. Hingað til hefur fjárhagur Jacksons aðallega snúist um að hann hefur ekki jafnmikinn aðgang að lausafé og áður. Hefur honum tekist að stinga sér fyrir horn með því að selja eignir, svo sem stóran hlut sinn í Sony/ATV Music Publishing.

Við sjáum þó hvað setur. 2008 gæti orðið árið sem markaði endurkomu þessa furðulega konungs poppsins.