Brimborg sýnir um helgina nýja útgáfu af Volvo XC90 sem mun vera hlaðin búnaði og munaði.

Brimborg sýnir um helgina nýja útgáfu af Volvo XC90 sem mun vera hlaðin búnaði og munaði.

Executive-útgáfan státar meðal annars af „óviðjafnanlegum þægindum, einstökum hljómburði, framúrskarandi vél ásamt fullkomnu öryggi,“ eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu. Vélarnar sem eru í boði eru annars vegar 4,4 lítra, 315 hestafla V8-bensínvél (sú léttasta sem framleidd er) og hins vegar 2,5 lítra, 185 hestafla dísilvél með forþjöppu. Opið er í Brimborg kl. 12-16 á morgun og léttar veitingar verða í boði fyrir gesti og gangandi.