Er pólitíkin þess virði? Skyldi Ólafur F. Magnússon ekki hafa spurt sig þessarar spurningar í moldviðri síðustu daga? Það er reyndar augljóst að andstæðingar hans hafa séð til þess að hann hefur fengið mörg tækifæri til þess.
Margir virðast líta svo á að um leið og einstaklingur gefur kost á sér til opinberra starfa hafi hann gefið skotleyfi á sig. Vissulega hafa orð og gerðir viðkomandi áhrif á umræðuna, en því virðist lítil takmörk sett hvað fólk telur sig geta gengið langt. Umræða um veikindi Ólafs þessa dagana er dæmi um slíkt.
Ásta Möller
astamoller.is