Geir Haarde
Geir Haarde
GEIR H. Haarde forsætisráðherra heimsækir Lúxemborg og Belgíu í síðari hluta febrúar til að ræða við forsætisráðherra ríkjanna. Hann mun einnig eiga viðræður við fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra NATO.

Forsætisráðherra mun eiga fund með Jean Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, þann 26. febrúar nk. og einnig kynna sér starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja í stórhertogadæminu. Þaðan fer forsætisráðherra til Belgíu og mun 26.-27 febrúar eiga fund Guy Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu, Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra NATO, Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Javier Solana, fulltrúa Evrópusambandsins á sviði sameiginlegu utanríkis- og öryggismálastefnunnar, Benita Ferrero-Waldner, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins á sviði stækkunarmála, og Olli Rehn, framkvæmdastjóra stækkunarmála.