Á heimasíðunni gaywheels.com er reglulega birtur uppfærður listi yfir þá bíla sem samkynhneigðir Bandaríkjamenn kaupa helst. Fyrir stuttu komst Mini Cooper á listann eftir stefnubreytingu BMW í málefnum samkynhneigðra.
Á heimasíðunni gaywheels.com er reglulega birtur uppfærður listi yfir þá bíla sem samkynhneigðir Bandaríkjamenn kaupa helst. Fyrir stuttu komst Mini Cooper á listann eftir stefnubreytingu BMW í málefnum samkynhneigðra. Sá bíll sem trónar þó hæst á listanum, nú sem fyrr, er Toyota Yaris. Á eftir honum koma, í réttri röð: Saab 9-3, Mazda MX-5, VW Rabbit, Audi A3, VW EOS, VW Jetta, Dodge Caliber, Toyota Camry og fyrrnefndur Mini Cooper. Athygli vekur að af þessum tíu efstu bílum er aðeins einn frá heimalandi kaupendanna.