Söfnun | Vinkonurnar Sólrún Liza Guðmundsdóttir og Inga Lilja Ásgeirsdóttir, sem eru 7 ára og eiga heima á Álftanesi, söfnuðu peningum fyrir ABC-barnahjálp með því að ganga í hús og syngja lag sem þær höfðu samið sjálfar. Söfnuðust 6.166 kr.
Söfnun | Vinkonurnar Sólrún Liza Guðmundsdóttir og Inga Lilja Ásgeirsdóttir, sem eru 7 ára og eiga heima á Álftanesi, söfnuðu peningum fyrir ABC-barnahjálp með því að ganga í hús og syngja lag sem þær höfðu samið sjálfar. Söfnuðust 6.166 kr. sem þær fóru með á skrifstofu ABC og er myndin tekin við það tækifæri. Peningarnir munu nýtast við uppbyggingu í Úganda í Afríku.