MATSFYRIRTÆKIÐ Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka. Jafnframt hefur það breytt horfum um langtímaeinkunn úr neikvæðum í stöðugar en ástæða þótti til að breyta þeim í neikvæðar þegar til stóð að yfirtaka hollenska bankann NIBC. Nú þegar hætt hefur verið við kaupin þykir óvissunni eytt .
Langtímaeinkunn Kaupþings hjá Fitch er A , skammtímaeinkunn F1, óháð einkunn B/C, stuðningseinkunn 2 og stuðningseinkunnargólf BBB .