[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Efnt verður til öskupokagerðar fyrir krakka á öllum aldri í Gerðubergi á laugardag en sá gamli siður að hengja öskupoka aftan á vegfarendur hefur því miður verið á undanhaldi.

Eftir Einar Jónsson

einarj@24stundir.is

Sú var tíðin að börn fóru um bæinn á öskudag og hengdu öskupoka á bak vegfarenda án þess að þeir yrðu þess varir. Þessi skemmtilegi og séríslenski siður hefur því miður nánast lagst af á undanförnum árum en nú hyggjast Heimilisiðnaðarfélagið og menningarmiðstöðin Gerðuberg endurvekja hann og halda námskeið í öskupokagerð fyrir krakka á öllum aldri.

Börn syngja í búðum

„Þetta er gamall og góður siður sem er að detta upp fyrir því nú eru krakkar farnir að taka upp norðlenska siði og syngja í búðum,“ segir Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður sem verður leiðbeinandi á námskeiðinu. Sjálf er Lára alin upp á Akureyri og segir að þar hafi bæði tíðkast að syngja á öskudag og hengja poka á vegfarendur.

„Upphaflega voru þetta kannski frekar ungar konur sem hengdu poka aftan á einhvern sem þær voru hrifnar af og má segja að þær hafi verið að reyna að krækja sér í kærasta,“ segir hún.

Til þess að hengja megi öskupoka aftan á einhvern er mikilvægt að vera með títuprjón sem hægt er að beygja. Framboð á slíkum títuprjónum hefur dregist saman á undanförnum árum og vilja sumir tengja minnkandi vinsældir öskupokanna við það. Lára Magnea kann ráð við því.

Títuprjónar úr skyrtum

„Maður þarf að safna títuprjónum úr herraskyrtum sem eru keyptar úti í búð. Það eru einu títuprjónarnir sem hægt er að beygja núna,“ segir hún og bendir jafnframt á að sumir noti einfaldlega litlar nælur í staðinn.

Öskupokagerðin fer fram í Gerðubergi laugardaginn 2. febrúar kl. 15-17.

Í hnotskurn
Öskupokar þekkjast ekki annars staðar en á Íslandi. Lengi vel hengdu konur poka með ösku á karla. Karlar hengdu aftur á móti poka með steinum á konur.