ENN einn milljónamæringurinn bættist í hópinn á Akureyri um síðustu helgi þegar 22 milljóna króna vinningur kom á lottómiða sem keyptur var í bænum. Á síðustu níu mánuðum hafa Akureyringar unnið alls 210 milljónir króna.
ENN einn milljónamæringurinn bættist í hópinn á Akureyri um síðustu helgi þegar 22 milljóna króna vinningur kom á lottómiða sem keyptur var í bænum. Á síðustu níu mánuðum hafa Akureyringar unnið alls 210 milljónir króna. Sá sem fékk hæstu upphæðina hreppti 105 milljónir en annar fékk tvo stóra vinninga með stuttu millibili; fyrst 54 milljónir í víkingalottói og þau hjón eignuðust síðan heilbrigt stúlkubarn nokkrum dögum síðar. | 20