Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að fyrirsætan Kate Moss hyggist ganga í það heilaga með kærasta sínum, gítarleikaranum Jamie Hince.

Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að fyrirsætan Kate Moss hyggist ganga í það heilaga með kærasta sínum, gítarleikaranum Jamie Hince. Fyrirsætan sást sanka að sér brúðarbæklingum á dögunum auk þess sem hún heimsótti Claridge´s-hótelið í London með það fyrir augum að skoða veislusal hótelsins. „Kate virkaði á mann sem ástfangin og örugg kona þegar hún kom,“ sagði talsmaður hótelsins. hþ