Eurobandið Friðrik Ómar og Regína Ósk verða fyrst á svið.
Eurobandið Friðrik Ómar og Regína Ósk verða fyrst á svið.
EUROBANDIÐ mun stíga fyrst á sviðið í forkeppni Evróvisjón í Belgrad í Serbíu í maí, en dregið var um röð keppenda í gær. Tvær undankeppnir fara fram, 20. og 22. maí, og verður íslenska lagið, „This is my life“, flutt síðara kvöldið.

EUROBANDIÐ mun stíga fyrst á sviðið í forkeppni Evróvisjón í Belgrad í Serbíu í maí, en dregið var um röð keppenda í gær. Tvær undankeppnir fara fram, 20. og 22. maí, og verður íslenska lagið, „This is my life“, flutt síðara kvöldið. Aðalkeppnin fer svo fram 24. maí. Svíar flytja lag sitt á eftir Íslendingum, en á Evróvisjón-vefnum esctoday.com segir að þetta sé athyglisverð röð þar sem þessi tvö lög hafi hlotið góðar viðtökur og þau hafi nokkuð líkt yfirbragð.

Þrjú ríki í hvorri undankeppni voru dregin út og fengu að velja sér hvar í röðinni þau færu á svið. Það kom í hlut Aserbaídjan, Grikklands og Rússlands, sem keppa fyrra kvöldið, og seinna kvöldið fá Makedónía, Portúgal og Danmörk að ráða.