Íþróttafélag Fjölnis skar sig áberandi úr á Íslandsmótinu í taekwondo sem fram fór um helgina. Hlutu Fjölnismenn samanlagt 79 stig í liðakeppninni en næsta lið á eftir, fimleikafélagið Björk, náði 39 stigum.
Íþróttafélag Fjölnis skar sig áberandi úr á Íslandsmótinu í taekwondo sem fram fór um helgina. Hlutu Fjölnismenn samanlagt 79 stig í liðakeppninni en næsta lið á eftir, fimleikafélagið Björk, náði 39 stigum. Metþátttaka var á mótinu þrátt fyrir mikil afföll vegna veikinda en einir 15 keppendur urðu að halda sig heima vegna flensu og annarra veikinda.