Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni nam aflaverðmæti íslenskra skipa áttatíu milljörðum króna á síðasta ári, samanborið við 76,2 milljarða árið 2006. Aflaverðmæti flotans jókst því um 3,9 milljarða eða 5,1 prósent á milli ára.
Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni nam aflaverðmæti íslenskra skipa áttatíu milljörðum króna á síðasta ári, samanborið við 76,2 milljarða árið 2006. Aflaverðmæti flotans jókst því um 3,9 milljarða eða 5,1 prósent á milli ára. Aflaverðmæti botnfisks var 60,3 milljarðar árið 2007 og jókst um 4,8 prósent frá fyrra ári, þá nam verðmæti þorskaflans 29,5 milljörðum króna og jókst um 6,8 prósent.