Í mörgum stórborgum erlendis skortir sífellt pláss til að byggja hús, því margir vilja vera nálægt miðbænum.
Í mörgum stórborgum erlendis skortir sífellt pláss til að byggja hús, því margir vilja vera nálægt miðbænum. Með þessu einstaka húsi er kannski komin lausn á vandanum, en þó er ekki víst að allir myndu sætta sig við að búa í svona einkennilega löguðu húsi. Húsið er staðsett í Tókýó og gólfflöturinn er 71,4 fermetrar. Skipulagið í húsinu þarf að vera mjög gott til að skapa fallegt heimili.