Það má segja að Heather Mills hafi gifst, nú eða skilið, til fjár.
Það má segja að Heather Mills hafi gifst, nú eða skilið, til fjár. Mills, sem giftist bítlinum Paul McCartney árið 2002 og skildi við hann árið 2006, fékk 3,7 milljarða íslenskra króna í sinn hlut í gær, sem reyndist niðurstaðan í skilnaðarmáli þessara fyrrverandi skötuhjúa. „Ég er bara fegin að þessu er lokið. Þetta var frábær niðurstaða sem tryggir fjárhagslega framtíð mína og dóttur minnar,“ sagði Mills, sem áður var gift uppþvottavélasölumanni.