Þrautinni þyngra getur reynst að marka af rými í litlum íbúðum án þess að þrengja það um of og ofhlaða af þungum skilrúmum, tjöldum eða hillum.

Þrautinni þyngra getur reynst að marka af rými í litlum íbúðum án þess að þrengja það um of og ofhlaða af þungum skilrúmum, tjöldum eða hillum.

Lausnin getur verið jafneinföld og sýnt er hér, rautt, útskorið plexí-gler er fest upp í eitt hornið sem gerir rýmið sérstakt og gefur því sérstakt yfirbragð án þess að ræna það birtu eða þrengja að því á nokkurn hátt.