Ógleymanlegt Útsýnið frá heimili Hagy Belzberg er vægast sagt magnað.
Ógleymanlegt Útsýnið frá heimili Hagy Belzberg er vægast sagt magnað.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það er ekki annað hægt en að dást að og láta sig dreyma um heimili á við það sem Hagy Belzberg arkitekt býr í. Þetta er óneitanlega ógleymanlegt heimili og arkitektúrinn fallegur eftir því.
Það er ekki annað hægt en að dást að og láta sig dreyma um heimili á við það sem Hagy Belzberg arkitekt býr í. Þetta er óneitanlega ógleymanlegt heimili og arkitektúrinn fallegur eftir því. Úr þessu fallega og nútímalega húsi er útsýni yfir Hollywood og miðbæ Los Angeles. Á svölunum er magnaður og risastór kvikmyndasalur, sem minnir helst á bílabíó. Sætin eru þó mun færri og einungis einn sófi fyrir gestina. Í húsinu má líka finna 20 metra sundlaug og heilsulind. Gestir gista vitanlega í sér gestahúsi við hlið hússins og annar lúxus á heimilinu er eftir því.