Sátt Heather Mills ræðir við fréttamenn fyrir utan dómhúsið í gær.
Sátt Heather Mills ræðir við fréttamenn fyrir utan dómhúsið í gær. — Reuters
HEATHER Mills fær 24,3 milljónir punda, tæplega 3,7 milljarða króna, í sinn hlut af eignum Pauls McCartney við skilnað þeirra samkvæmt úrskurði dómara í Lundúnum sem kveðinn var upp í gær.

HEATHER Mills fær 24,3 milljónir punda, tæplega 3,7 milljarða króna, í sinn hlut af eignum Pauls McCartney við skilnað þeirra samkvæmt úrskurði dómara í Lundúnum sem kveðinn var upp í gær. Mills staðfesti þetta þegar hún ræddi við fréttamenn utan við dómhúsið. Hún sagðist hafa krafist 125 milljóna punda en McCartney hefði boðið 15,8 milljónir. Mills fær 16,5 milljónir punda í peningum og 7,8 milljónir punda í eignum. Miðaði dómarinn við að eignir McCartneys næmu um 400 milljónum punda en þær hafa til þessa verið metnar á 826 milljónir pund.

Mills segist ekki ætla að áfrýja niðurstöðunni til æðra dómstigs en ætli að áfrýja þeirri ákvörðun dómarans að birta úrskurðinn. Sagði hún, að úrskurðurinn væri mjög ítarlegur og birting hans bryti í bága við mannréttindareglur, sem tryggðu friðhelgi einkalífs.

Dómarinn birti málsaðilum skriflegan úrskurð sinn í gær, en hann var búinn að tilkynna lögmönnum þeirra Mills og McCartney munnlega um niðurstöðuna í síðustu viku.

„Ég er afar, afar ánægð með niðurstöðuna,“ sagði Mills við blaðamenn. „Ég er svo ánægð með að þessu sé lokið.“

McCartney ræddi hins vegar ekki við fréttamenn þegar hann kom út úr dómhúsinu, og hefur ekki viljað tjá sig um málið.