Von er á Al Gore fyrrum varaforseta Bandaríkjanna og handhafa friðarverðlauna Nóbels til landsins sjöunda til áttunda apríl næstkomandi. Gore kemur hingað í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands.

Meðal þess sem Gore mun taka sér fyrir hendur á meðan á heimsókninni stendur verða kynningarfundir með íslenskum vísindamönnum. Þá mun Gore flytja fyrirlestur um loftslagsbreytingar og baráttuna gegn þeim. Fyrirlesturinn verður haldinn í samstarfi við Glitni og opinn almenningi. fr