Eiríkur Baldursson
Eiríkur Baldursson
VÍSINDASIÐANEFND hefur ráðið dr. Eirík Baldursson í starf framkvæmdastjóra nefndarinnar. Eiríkur lauk fil. kand. prófi frá Gautaborgarháskóla árið 1979 með áherslu á vísindafræði en félagsfræði og hagfræði sem aukagreinar.

VÍSINDASIÐANEFND hefur ráðið dr. Eirík Baldursson í starf framkvæmdastjóra nefndarinnar.

Eiríkur lauk fil. kand. prófi frá Gautaborgarháskóla árið 1979 með áherslu á vísindafræði en félagsfræði og hagfræði sem aukagreinar. Að námi loknu starfaði hann hjá rannsóknaráði ríkisins og vísindaráði til ársins 1994. Eiríkur vann hjá menntamálaráðuneytinu frá árinu 1994 þar sem hann hefur starfað lengst sem sérfræðingur á skrifstofu vísindamála ráðuneytisins og árin 1997-2001 gegndi hann stöðu vísindafulltrúa hjá fastanefnd Íslands hjá Evrópusambandinu. Hann hefur frá árinu 2004 verið ritari Vísinda og tækniráðs.

Hjá vísindasiðanefnd starfa þrír menn. Starfsemin hefur farið vaxandi undanfarin ár og samkvæmt nýrri reglugerð um störf hennar er ljóst af umfang starfseminnar á enn eftir að aukast á næstu árum.