Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Það verður síður en svo ódýrt fyrir Íslendinga að ferðast um páskahelgina.

Eftir Hlyn Orra Stefánsson

hlynur@24stundir.is

Það verður síður en svo ódýrt fyrir Íslendinga að ferðast um páskahelgina. Standi hugurinn til ferðalaga innanlands mun hækkun á eldsneytisverði valda því að bensínkostnaður verði þriðjungi hærri en vegna sama ferðalags fyrir ári.

Ef helgarferð til Kaupmannahafnar verður fyrir valinu má líka reikna með því að bjórinn á Strikinu kosti íslenskan ferðalang jafnvirði 800 íslenskra króna, í stað 600 króna fyrir ári, og sé því orðinn þriðjungi dýrari.

Ef gengisbreytingar síðustu daga ganga ekki til baka má fastlega búast við því að sumarleyfið verði líka miklu dýrara en margir gerðu ráð fyrir, hvort sem ferðast verður innanlands eða utan. Ferðaskrifstofur, sem við var rætt, sögðu líklegt að verð á pakkaferðum hækkaði. Þá þýðir gengislækkun að allur innfluttur varningur, þar á meðal matur og drykkur, hækkar í verði.

Eldsneytið í sögulegum hæðum

Skeljungur, Olís og N1 hækkuðu bensínverð í gær í 147,90 krónur í sjálfsafgreiðslu, og er það nú í sögulegu hámarki. „Þetta er mjög alvarlegt,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. „Sögulega séð er bensínverð hæst á sumrin, en sá tími er ekki enn genginn í garð.“

Samkvæmt upplýsingum frá FÍB er ekki óvarlegt að ætla að aka þurfi 1.500 kílómetra til að fara hringinn í kringum landið. Á hefðbundnum fólksbíl má reikna með að bensínkostnaður við slíkt ferðalag sé um 20 þúsund krónur. Í fyrra hefði bensínið kostað um 15.400 krónur, þegar lítri af bensíni kostaði 114,40 krónur. Ef stærri dísilfararskjóti verður fyrir valinu getur eldsneytið orðið um tíu þúsund krónum dýrara.

Ákveði ferðalangurinn að skella sér í borgarferð horfir hann ekki fram á minni hækkanir, sökum veikingar íslensku krónunnar gagnvart flestum öðrum gjaldmiðlum. Til dæmis fór evran í 119,44 krónur í gær, sem er met. Á sama tíma í fyrra kostaði evran undir 90 krónum. Danska krónan stóð í 15,91 krónu í lok dags og hefur sjaldan verið hærri gagnvart krónunni; í mars í fyrra kostaði hún rétt tæpar 12 krónur.

Ekki hagkvæmt að fara utan

Þannig kostar tveggja manna herbergi á Imperial Hotel í Kaupmannahöfn 6.360 danskar krónur fyrir fjórar nætur yfir páskana. Á gengi dagsins í gær gerir það tæpar 101 þúsund krónur. Á gengi sama dags í fyrra samsvaraði það um 76 þúsund krónum og munar því þriðjungi.
Í hnotskurn
Bensínverð í sjálfsafgreiðslu var hækkað í 147,90 krónur í gær og er í sögulegum hæðum. Bandaríkjadollar kostaði í lok gærdagsins 75,77 krónur, breska pundið 151,63 krónur evran 119,44 krónur.