Þegar verið er að skipuleggja garðinn við húsið er nauðsynlegt að finna skjólsælan stað þar sem má setja lítinn pall eða verönd. Þó ekki sé oft veður til að sitja úti í garði á Íslandi þá er tilvalið að nota þau tækifæri sem til þess gefast.
Þegar verið er að skipuleggja garðinn við húsið er nauðsynlegt að finna skjólsælan stað þar sem má setja lítinn pall eða verönd. Þó ekki sé oft veður til að sitja úti í garði á Íslandi þá er tilvalið að nota þau tækifæri sem til þess gefast. Best er að finna stað þar sem sólin skín mestallan daginn en samt helst þar sem er skjól fyrir vindum. Gott er að hafa pallinn stóran svo að hægt sé að koma garðhúsgögnum fyrir.