Íslendingar eru frægir fyrir verslunarferðir sínar enda erum við með svarta beltið í slíkum ferðum. Ýmislegt þarf þó að hafa í huga áður en farið er í verslunarferð. Mikilvægasta atriðið er að vera með þægilega skó í farteskinu.

Íslendingar eru frægir fyrir verslunarferðir sínar enda erum við með svarta beltið í slíkum ferðum. Ýmislegt þarf þó að hafa í huga áður en farið er í verslunarferð. Mikilvægasta atriðið er að vera með þægilega skó í farteskinu. Eftir heilan dag af búða-

rápi eru fæturnir orðnir verulega þreyttir og háir hælar koma ekki til greina. Einnig er gott að vera í þægilegum fötum sem þægilegt er að fara í og úr í mátunarklefanum. Hafið í huga að tollurinn fylgist vel með magninu sem komið er með heim og því er best að kaupa ekki of mikið.