[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Gamanþættirnir Flight of the Conchords komast nálægt því að sýna lífið eins og það ætti að vera í raun. Þegar aðstæður verða svo flóknar að nær ómögulegt er að komast út úr þeim bresta þeir Jemaine og Bret í söng.

Gamanþættirnir Flight of the Conchords komast nálægt því að sýna lífið eins og það ætti að vera í raun. Þegar aðstæður verða svo flóknar að nær ómögulegt er að komast út úr þeim bresta þeir Jemaine og Bret í söng. Þeir bresta samt ekki í hádramatísk söngleikjalög sem krefjast þess að þeir ljúki námi í tæknilegri útfærslu söngs og hljóðfæraleiks. Nei, Bret og Jemaine syngja einföld, smellin og stórskemmtileg lög. Þeir eru ekki fórnarlömb aðstæðna. Þvert á móti taka þeir völdin og gera aðstæðurnar að eigin fórnarlömbum.

Eftir hvern þátt óska ég þess að lífið væri söngleikur, þá yrði allt miklu skemmtilegra. Ef ég ætti erfitt með að kaupa á mig föt myndi ég syngja lag inni í verslununum og starfsfólkið myndi raða sér í kringum mig, dansa og klæða mig um leið í. Og ef ég gæti ekki ákveðið hvað ætti að vera í matinn gæti ég tekið lagið fyrir leigusalana og sungið uppskriftina að frábærum ofnrétti á meðan hráefnið dansaði sjálfkrafa í eldfasta mótið sem myndi svo taka heljarstökk inn í ofninn. Í söngleikjum öðlast dauðir hlutir líf og stíga dans með dauðlegum verum; manneskjum og dýrum. Verst að Flight of the Conchords er nær draumaheiminum en raunveruleikanum.