Bjartsýn Sarah Jessica Parker.
Bjartsýn Sarah Jessica Parker. — Reuters
LEIKKONAN Sarah Jessica Parker er þess fullviss að aðdáendur Sex and the City þáttanna verði ekki sviknir af kvikmynd sem byggð er á þáttunum og verður frumsýnd í maí.

LEIKKONAN Sarah Jessica Parker er þess fullviss að aðdáendur Sex and the City þáttanna verði ekki sviknir af kvikmynd sem byggð er á þáttunum og verður frumsýnd í maí. „Fólk verður bæði hissa, sorgmætt og ánægt,“ sagði leikkonan í nýlegu viðtali.

Þá greindi hún einnig frá því að það hefði tekið hana 18 mánuði að telja þær Cynthiu Nixon, Kristin Davis og Kim Cattrall á að leika í myndinni, eftir að tökum á síðasta þættinum lauk árið 2004.