Dómstóll í Makedóníu hefur sakfellt björn fyrir að stela ítrekað hunangi úr býkúpum býflugnabónda í bænum Bitola. Bóndinn reyndi fyrst að halda birninum fjarri með því að lýsa upp býlið sitt og spila háværa þjóðlagatónlist en allt kom fyrir ekki.

Dómstóll í Makedóníu hefur

sakfellt björn fyrir að stela ítrekað hunangi úr býkúpum býflugnabónda í bænum Bitola.

Bóndinn reyndi fyrst að halda birninum fjarri með því að lýsa upp býlið sitt og spila háværa þjóðlagatónlist en allt kom fyrir ekki. Bóndinn kærði því björninn, sem var fundinn sekur um þjófnað og skemmdarverk. Bangsi gengur enn laus, þar sem yfirvöldum hefur ekki tekist að hafa hendur í hári hans. aí