Sumarið er rétt handan við hornið og flestir eru því farnir að skipuleggja sumarleyfið. Úrvalið af ferðapökkum er nánast ótakmarkað og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Sumarið er rétt handan við hornið og flestir eru því farnir að skipuleggja sumarleyfið. Úrvalið af ferðapökkum er nánast ótakmarkað og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Þegar vorar aukast líka möguleikarnir á beinu flugi til borga sem við komumst annars ekki til nema með ýmsum krókaleiðum. Barcelona er ein þessara borga en hún er einn af vinsælustu áfangastöðum sólarþyrstra Íslendinga.

Bæði Iceland Express og Icelandair bjóða upp á beint flug til Barcelona um þessar mundir.