Páskafrí Margir ætla á skíði um páskana á Ísafirði eða Akureyri þar sem myndin var tekin.
Páskafrí Margir ætla á skíði um páskana á Ísafirði eða Akureyri þar sem myndin var tekin. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is FJÖLDI fólks verður á faraldsfæti um komandi páska, bæði innanlands og einnig til og frá Íslandi. Fólk í ferðaþjónustu telur að það auki á ferðagleði landans hvað páskarnir eru snemma í ár.

Eftir Guðna Einarsson

gudni@mbl.is

FJÖLDI fólks verður á faraldsfæti um komandi páska, bæði innanlands og einnig til og frá Íslandi. Fólk í ferðaþjónustu telur að það auki á ferðagleði landans hvað páskarnir eru snemma í ár. Bæði hvetur það til skíðaferðalaga innan lands og utan um páskana og eins nota margir kærkomna frídaga til að bregða sér í hlýrra loftslag. Páskaferðir ferðaskrifstofanna til útlanda eru flestar löngu uppseldar. Innanlands virðist fólk ætla að streyma til Ísafjarðar og Akureyrar, enda góð skíðasvæði á báðum stöðum og margs konar önnur afþreying í boði.

Páskaferðir seldust víða upp

„Það er bara allt að fyllast,“ sagði Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. Hann sagði að félagið hafi sett inn margar aukaferðir í áætlun sína fyrir páskana.

Í gær voru flugsæti til Alicante á Spáni og Varsjár í Póllandi uppseld. Þá voru örfá sæti laus til Berlínar og Kraká í Póllandi og orðið lítið um laus sæti til London og Kaupmannahafnar. Taldi Matthías stefna í að ferðir til útlanda fyrir páska seldust upp á morgun eða fimmtudag. Um síðustu helgi voru nánast allar vélar Iceland Express til útlanda fullsetnar.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri Icelandair, sagði að flugvélar félagsins væru fullsetnar eða því sem næst þessa dagana. Hann sagði að félagið hefði þétt áætlun sína á þessum tíma eins og gjarnan væri gert um páska.

„Við höfum samanburð við páska undanfarinna ára og þetta er með því allra mesta sem við sjáum,“ sagði Guðjón. Hann taldi það m.a. stafa af því að páskar eru óvenju snemma í ár. Páskafrí sé kærkomið tækifæri til ferðalaga. Töluvert er síðan ferðir til Orlando í Flórida fyrir þessa páska seldust upp. Flug Icelandair á aðra áfangastaði vestan hafs og austan eru einnig mjög þéttbókuð.

Ríflega þrjú þúsund manns fara í páskaferðir á vegum Ferðaskrifstofu Íslands og eru páskaferðirnar löngu uppseldar, að sögn Guðrúnar Sigurgeirsdóttur markaðsstjóra. Undir Ferðaskrifstofu Íslands heyra Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir. Guðrún sagði að vegna þess hvað páskarnir eru snemma í ár hafi skíðaferðir einnig verið í boði auk sólarferða. Nú voru óvenju margar ferðir í boði til Kanaríeyja og Tenerife. Á vegum Ferðaskrifstofu Íslands fara fyrir páska fjórar flugvélar til Las Palmas á Kanarí, fjórar til Tenerife, ein til Tyrklands, ein til Portúgal, ein til Costa del Sol og þrjár til Alicante á Spáni. Þá fer flugvél með skíðafólk til Austurríkis og önnur til Ítalíu eða alls 16 flugvélar með 189 farþega hver.

Allar páskaferðir hjá Heimsferðum seldust upp fyrir nokkru síðan, að sögn Tómasar J. Gestssonar framkvæmdastjóra. Á þeirra vegum fara rúmlega 1.700 manns í frí um páskana. Þannig fer flugvél til Dóminikanska lýðveldisins, tvær til Tenerife og þrjár til Las Palmas, ein til Alicante, önnur til Costa del Sol og ein flugvél með fólk í golfferð. Þá verður eitt beint flug til Prag frá Akureyri.

Tómas sagði þetta örlítið meiri farþegaflutninga en í fyrra og segja mætti að megnið af þessum ferðum hefði selst fyrir löngu. Þá sagði hann einnig vera mikið bókað í borgarferðir í vor og virtist ekkert lát vera á eftirspurn eftir utanlandsferðum.

Ísafjörður og Akureyri vinsælust

Páskaumferðin í innanlandsflugi Flugfélags Íslands hófst þegar síðastliðinn föstudag, að sögn Árna Gunnarssonar framkvæmdastjóra. Þá voru flutt hátt í tvö þúsund manns og einnig ferðuðust margir um síðustu helgi. Búist er við öðrum ferðakúf á morgun og á skírdag. Á annan í páskum er einnig mjög mikið bókað af flugferðum. Taldi Árni að 5-6 þúsund manns ferðuðust innanlands með félaginu um páskana.

„Það liggur mikill straumur bæði til Ísafjarðar og Akureyrar, sagði Árni. Greinilega er mikill áhugi á Skíðavikunni og tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Hefur verið bætt við aukaferðum til Ísafjarðar vegna eftirspurnar. Þá er einnig mikið bókað til og frá Akureyri og settar inn aukaferðir þangað. Frá Akureyri eru t.d. áætlaðar tíu ferðir á annan í páskum. Þann dag eru níu ferðir áætlaðar frá Ísafirði en eru venjulega tvær á mánudögum.

Í gær var búið að bóka allt gistirými á Ísafirði um páskana og mikið búið að bóka í nágrenninu eins og í Önundarfirði, Súgandafirði, Dýrafirði og Bolungarvík að sögn Heimis G. Hanssonar, forstöðumanns Upplýsingamiðstöðvar Vestfjarða á Ísafirði. „Þetta boðar afskaplega gott fyrir ferðaþjónustuna hér á svæðinu,“ sagði Heimir. Hann sagði búist við fleirum vestur nú en um páskana í fyrra, ef veður verður gott. Í fyrra var þar mjög margt um manninn á Ísafirði um páska.

Heimir sagði að Skíðavikan hefði höfðað mikið til brottfluttra Ísfirðinga og afkomenda þeirra. Búast má við að margir fari vestur á skíði að þessu sinni, enda ekki verið jafn mikill og góður skíðasnjór þar í áraraðir. Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefur dregið að algjörlega nýjan hóp gesta og bætt miklu við heildarfjölda ferðafólks sem kemur til Ísafjarðar um páska. Heimir sagði erfitt að slá nokkru föstu um hve margir kæmu vestur um næstu páska en þeir mundu væntanlega skipta einhverjum þúsundum. Margir koma á eigin vegum og gista í heimahúsum auk þeirra sem kaupa sér gistingu.

„Við væntum mikillar aðsóknar. Það verður mjög mikið um að vera og væntanlega mikið fjölmenni hér,“ sagði María Helena Tryggvadóttir hjá Akureyrarstofu um komandi páskahelgi á Akureyri. Hún kvaðst hafa heyrt af gististöðum í bænum þar sem þegar búið að bóka allt pláss um páskana. María minnti á að á Akureyri væru margir gistimöguleikar og eins í næsta nágrenni. Þá eiga mörg stéttarfélög íbúðir á Akureyri og eins einstaklingar sem búsettir eru annars staðar.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli dregur líklega flesta til Akureyrar en þar hefur verið dásamlegt veður undanfarið og var mjög margt í fjallinu um helgina, að sögn Maríu. Hún sagði að mikið yrði einnig um að vera á menningarsviðinu á Akureyri. Margar sýningar haldnar og gallerí opin um páskana. Þá er Skautahöllin vinsæl og komin keiluhöll auk þess sem útivistarsvæði á borð við Kjarnaskóg njóta mikilla vinsælda.

„Það er um margt að velja hér hvernig sem viðrar, þá er bæði hægt að vera úti eða leita sér afþreyingar innanhúss,“ sagði María.