ÞRJÚ fíkniefnamál komu upp í síðustu viku í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Tvö þeirra komu upp á Litla-Hrauni er fangaverðir fundu lítilræði af fíkniefnum við klefaleit.

ÞRJÚ fíkniefnamál komu upp í síðustu viku í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Tvö þeirra komu upp á Litla-Hrauni er fangaverðir fundu lítilræði af fíkniefnum við klefaleit.

Þriðja málið kom upp þegar lögreglumenn voru í almennu umferðareftirliti í Hveragerði þar sem þeir fundu maríjúana á ökumanni sem afskipti voru höfð af. Ökumaðurinn var einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn.