Húseigendur láta sig margir dreyma um að stækka við sig eða byggja bílskúr. Sumir hugsa sem svo að þetta sé þeirra eign og þeir geti því gert hvað sem er.
Húseigendur láta sig margir dreyma um að stækka við sig eða byggja bílskúr. Sumir hugsa sem svo að þetta sé þeirra eign og þeir geti því gert hvað sem er. Það er þó ekki svo, enda hafa fjölmargir lent í margra ára lagabaráttu til að bjarga bílskúr eða viðbyggingu sem þeir byggðu án leyfis. Gullna reglan er sú að fá öll leyfi og alla pappíra stimplaða áður en bygging hefst.