Sigríður skrifar: Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að stundum hafa blaðamenn ekkert til að skrifa um. Eins átta ég mig á að marga þyrstir í innihaldslausa þekkingu um helstu stjörnur heims. En fyrr má nú fyrr vera.

Sigríður skrifar:

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að stundum hafa blaðamenn ekkert til að skrifa um. Eins átta ég mig á að marga þyrstir í innihaldslausa þekkingu um helstu stjörnur heims. En fyrr má nú fyrr vera. Ef ég les enn eina frétt um dópfyllirí Amy Winehouse eða ábyrgðarleysi Britney Spears þá neyðist ég til að segja upp öllum fjölmiðlum. Þrátt fyrir að það sé ósannað hef ég trú á að svona efni hafi áhrif á greind okkar. Því minna sem við notum heilann því erfiðara verður að nota hann. Ef við lesum í sífellu svona þvælu get ég svarið að við getum ekki hugsað sjálfstæða hugsun eftir nokkra tugi ára.