Eurobandið gengur fyrst á sviðið í forkeppni Eurovision í Belgrad í Serbíu í maí en dregið var um röð keppenda í gær. Tvær undankeppnir fara fram, 20. og 22. maí og verður íslenska lagið, This is my life, flutt síðara kvöldið. Aðalkeppnin fer fram 24.

Eurobandið gengur fyrst á sviðið í forkeppni Eurovision í Belgrad í Serbíu í maí en dregið var um röð keppenda í gær. Tvær undankeppnir fara fram, 20. og 22. maí og verður íslenska lagið, This is my life, flutt síðara kvöldið. Aðalkeppnin fer fram 24. maí.

Svíar koma næstir á eftir Íslendingum. Á vefnum esctoday.com segir, að þetta sé athyglisverð röð þar sem þessi tvö lög hafi hlotið góðar viðtökur og þau hafi nokkuð líkt yfirbragð. mbl.is