— 24stundir/Frikki
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Algengt er að kaupendur íbúða í fjöleignarhúsum fari á flug, umturni þeim og endurbyggi. Slíkt veldur sambýlisfólkinu ónæði og raskar ró þess og heimilisfriði

Stundum er þetta Sagan endalausa og framkvæmdir spanna langan tíma. Oft er barið, mölvað, sagað og borað á öllum tímum. Slæm umgengni um sameignina er gjarnan fylgifiskur. Eru dæmi um illvígar deilur og stríðsásand og að íbúðareigendur hafa flúið hús þegar verst hefur látið. Menn nota jafnvel sleggjur og múrbrjóta til tjáskipta. Þegar framkvæmdagleðin keyrir úr hófi eru góð ráð dýr. Hún er oft stjórnlaus, illviðráðanleg og illkynja í þokkabót. Sáttfýsi, sanngirni, málamiðlun, tillitssemi, skilningur og umburðarlyndi eru þau bönd sem hún verður hamin í og tamin.

Hús hins himneska friðar

Í fjölbýli er fín línan milli athafnafrelsis og hagnýtingar eins og friðar annars. Jafnvægið er hárfínt og viðkvæmt. Þar gildir hið gullna meðalhóf sem mörgum gengur svo tregt að feta. Mörkin milli athafnafrelsis eins og næðisréttar annars eru hárfín og þarf lítið til að raska þeim. Smæstu mál geta á augabragði blossað upp í skaðræðis ófriðarbál. Hús hins himneska friðar getur á örskotsstundu orðið vítishús.

Skyldur – Tillitssemi

Eigendum er skylt að haga hagnýtingu sinni og umgengni þannig að aðrir í húsinu verði ekki fyrir meiri ama, ónæði og óþægindum en óhjákvæmilegt er og venjulegt. Eiganda ber að taka sanngjarnt og eðlilegt tillit til sambýlisfólks síns og fara eftir lögum og reglum og samþykktum húsfélagsins í því efni. Í flestum tilvikum er sambýlið til allrar hamingju með ágætum án þess að menn séu að velta fyrir sér reglum og fari meðvitað eftir þeim.

Meðalhóf – Fjölskyldubrölt

Í fjölbýlishúsum er hver inni á gafli hjá öðrum. Venjulegt fjölskyldubrambolt verða menn að umlíða granna sínum þótt því fylgi eitthvert ónæði. Það er almennur mælikvarði sem gildir. Eigandi á ekki kröfu á því að tekið sé sérstakt tillit til viðkvæmni hans. Það er meðalhófið sem ræður. Menn hafa sanngjarnt svigrúm til að fegra, breyta og bæta heimili sín í takt við tímann og þarfir hverju sinni þótt því fylgi rask, umrót og ónæði. Heimilisfriður annarra eigenda er sömuleiðis varinn í lögum. Menn eiga rétt á hvíld og næði á heimili sínu til að hlaða batteríin fyrir lífsbaráttuna.

Takmörk

Eigendum fjöleignarhúsa eru sem sagt takmörk sett við hagnýtingu eigna sinna og þeir hafa fráleitt frítt spil og mega ekki fara sínu fram á sínum forsendum eingöngu og kæra sig kollótta um hagsmuni og rétt sameigenda sinna. Á hinn bóginn verða íbúar í fjöleignarhúsum að sætta sig við og þola að vissu marki ónæði og óþægindi sem ekki verða umflúin. Menn verða að sætta sig við það að þeir eru á sama báti, undir sama þaki, og fleira fólk sem lifir sínu lífi og á sér líka tilverurétt.

Draga úr ónæði

Þeir sem kjósa að búa í fjölbýli verða að sætta sig við ýmis „óþægindi“ vegna hins nána sambýlis en þeim er hins vegar óskylt að búa við viðvarandi verulegt ónæði. Ýmiss konar brölt og fyrirgangur er eðlilegur þáttur í viðhaldi og eðlilegum endurbótum og umhirðu eignar, t.d. hamarshögg og boranir. Öðru máli gegnir hins vegar um múrbrot og annan „djöfulgang“ en telja verður að aðrir eigendur þurfi ekki að þola slíkt nema á daginn. Rík skylda hvílir á eiganda sem stendur í framkvæmdum að hann geri allt sem í hans valdi stendur til að sambýlisfólk hans verði fyrir sem minnstu ónæði og óþægindum vegna þeirra.

Í himnalagi eða andskotinn laus

Ef fólk færi almennt eftir hinni góðu bók um að gera öðrum ekki neitt sem það vill ekki að aðrir gjöri því þá væri allt í himnalagi. En við erum því miður upp til hópa þrjóskir, yfirgangssamir, ráðríkir, heimaríkir frekjuhundar sem eiga bágt með að setja sig í spor annarra og beita málamiðlun. Í stað þess að fara eftir boði Nýja testamentisins virðist okkur miklu tamara að fara eftir grimmum og hefnigjörnum boðum Gamla testamentisins um auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Og þá er vísast andskotinn laus.

Brotið og bramlað

Í lögum um fjöleignarhús eru engin bein ákvæði um það hversu lengi og á hvaða tímum megi smíða, brjóta og bramla en þar er hins vegar almennt boðið að íbúar skuli gæta þess að valda sambýlisfólki sínu ekki óþarfa ama og óþægindum. Jafnframt er mælt fyrir um að húsreglur skuli geyma nánari fyrirmæli um hagnýtingu eigna og samskipti eigenda í því efni. Skal í þeim m.a. koma fram bann við röskun á svefnfriði, a.m.k frá miðnætti til klukkan sjö. Frá þessari reglu má þó alls ekki gagnálykta á þá lund að láta megi illum látum á öðrum tímum. Menn eiga alltaf að stíga varlega til jarðar eða gólfs og sýna hver öðrum tillitssemi ávallt og á öllum tímum

Verktími og samráð

Almennt má segja að viðhald og endurbætur í fjöleignarhúsum eigi að framkvæma á eins skömmum tíma og framast er unnt og með sem allra minnstu ónæði og röskun fyrir aðra íbúa hússins. Þó verður að veita framkvæmdaglöðum eiganda ákveðið sanngjarnt svigrúm í tíma og framkvæmdartilhögun. Brýnt er að hann kosti kapps um að hafa samráð við aðra eigendur fyrirfram og upplýsi þá um framgang og stöðu verksins og reyni eins og kostur er að taka tillit til eðlilegra sanngjarnra óska og sjónarmiða annarra eigenda við framkvæmdina. Framkvæmdir sem hefjast eins og þruma eða loftárás úr heiðskíru lofti valda deilum og leiðindum.