[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Ég var vonsvikin og hissa á viðbrögðum baðvarðarins,“ segir sænska baráttukonan Kristin Karlsson. Kristin fór berbrjósta í sund í Hveragerði um helgina ásamt íslenskum félaga sínum.

Eftir Atla Fannar Bjarkason

atli@24stundir.is

„Ég var vonsvikin og hissa á viðbrögðum baðvarðarins,“ segir sænska baráttukonan Kristin Karlsson.

Kristin fór berbrjósta í sund í Hveragerði um helgina ásamt íslenskum félaga sínum. Baðvörður á vakt brást ókvæða við, rétti Kristinu stuttermabol og sagði að hún yrði að hylja sig, ella yrði hún rekin upp úr. Kristin yfirgaf þá sundlaugina. „Þetta er á skjön við það sem ég hef heyrt um sundlaugar á Íslandi. Ég var búin að heyra að það væru hvorki reglur né lög um þetta á Íslandi,“ segir Kristin.

Berst fyrir jafnrétti í Svíþjóð

Kristin hefur mótmælt því að konur þurfi að hylja barm sinn í sundlaugum í Svíþjóð. Hún skrifaði greinar í þarlenda fjölmiðla sem vöktu mikla athygli og urðu til þess að samtökin Bara bröst voru stofnuð. 24 stundir hafa fjallað um málefni samtakanna, sem hafa barist fyrir jafnrétti í baðfatareglum í Svíþjóð. Í frétt 24 stunda frá því í janúar kemur fram að engar reglur gildi um baðfatnað kvenna í sundlaugum landsins.

„Baðvörðurinn talaði um að það hefði verið kvartað,“ segir Kristin. „Það er óalgengt að konur fari topplausar í sund svo að fólk horfði vegna þess að það var hissa. Það voru engin önnur viðbrögð.“

Pétur Ingvarsson gegndi stöðu íþrótta- og tómstundafulltrúa í Hveragerði þegar 24 stundir fjölluðu um svipað málefni undir fyrirsögninni Íslenskar konur mega bera brjóstin í janúar. Hann sagði baðverði ekki aðhafast þegar konur liggja berbrjósta í sólbaði við sundlaugina í Hveragerði.

Pétur starfar ekki lengur hjá Hveragerðisbæ, en 24 stundir höfðu samband við Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði. „Þetta var skondin uppákoma og kom fólki á óvart,“ segir hún. „Við höfum aldrei lent í þessu, sem skýrir viðbrögð sundlaugarvarðarins.“

Aldís segir viðhorf forstöðumanna annarra sundlauga hafa verið kannað í gær. „Af þeim sundlaugum sem við hringdum hefur engin lent í þessu. Sundlaugaforstöðumenn hittast reglulega og mér finnst ekki ólíklegt að málið verði tekið upp.“