Færeysk innrás Í kvöld verður færeysk tónlistarveisla á skemmtistaðnum Organ . Þá stíga á stokk Evör Pálsdóttir, Boys in Band og Bloodgroup .
Færeysk innrás Í kvöld verður færeysk tónlistarveisla á skemmtistaðnum Organ . Þá stíga á stokk Evör Pálsdóttir, Boys in Band og Bloodgroup . Eivör er einmitt tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem besta söngkona í þriðja sinn, en verðlaunaafhendingin fer fram í kvöld. Boys in Band sigraði Global Battle of the Bands í desember og eru nýkomnir úr tónleikaferð um Ameríku. Bloodgroup fær svo að vera með þar sem Janus, söngvari sveitarinnar, er færeyskur í húð og hár.