Egilsstaðir | 157 hreindýraveiðileyfum hefur verið endurúthlutað, en það eru leyfi sem ekki var greitt staðfestingargjald af til Veiðistjórnunarsviðs fyrir 1. apríl sl. Um er að ræða 63 leyfi á tarfa og 94 á kýr.
Egilsstaðir | 157 hreindýraveiðileyfum hefur verið endurúthlutað, en það eru leyfi sem ekki var greitt staðfestingargjald af til Veiðistjórnunarsviðs fyrir 1. apríl sl. Um er að ræða 63 leyfi á tarfa og 94 á kýr. Endurúthlutað er til þeirra sem lægstar tölur hafa í biðröð umsækjenda sem ekki fengu leyfi í útdrætti. Verða þeir að staðfesta hvort þeir taka leyfin í öndverðum maí. Veiðitímabilið hefst 1. ágúst og stendur til 15. september. Kvótinn er nú 1.333 hreindýr.