Þegar leiktæki eru yfirfarin er sérstaklega mikilvægt að athuga ástand slitflata og annarra hluta þeirra sem eru undir miklu álagi.
Þegar leiktæki eru yfirfarin er sérstaklega mikilvægt að athuga ástand slitflata og annarra hluta þeirra sem eru undir miklu álagi. Þannig ættu menn að skoða efstu hlekki í rólum sem og þá sem eru næstir setunni og legur í vegasöltum þar sem mestur núningur er. Gott er að huga að ryði og öðru sliti og ganga úr skugga um að hvergi skagi oddhvassir hlutir út.