Hamingjusöm Meyer og Maguire.
Hamingjusöm Meyer og Maguire. — Reuters
BANDARÍSKI leikarinn Tobey Maguire og eiginkona hans Jennifer Meyer eiga von á sínu öðru barni í október. Stutt er stórra högga á milli hjá þeim hjónum því fyrir eiga þau hina 17 mánaða gömlu dóttur Ruby. „Þau eru afskaplega hamingjusöm.

BANDARÍSKI leikarinn Tobey Maguire og eiginkona hans Jennifer Meyer eiga von á sínu öðru barni í október. Stutt er stórra högga á milli hjá þeim hjónum því fyrir eiga þau hina 17 mánaða gömlu dóttur Ruby.

„Þau eru afskaplega hamingjusöm. Þar sem þau eiga litla stelpu fyrir langar þau mikið til þess að eignast dreng, þótt þau myndu auðvitað fagna annarri dóttur líka,“ sagði vinur hjónanna í viðtali við tímaritið In Touch Weekly.

Maguire er 32 ára en Meyer er 31 árs. Þau gengu í það heilaga í september. Maguire er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem kóngulóarmaðurinn.