Kjartan Ólafsson
Kjartan Ólafsson
KJARTAN Ólafsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Glitnir Securities í Osló, hefur tekið að sér að stýra alþjóðlegu sjávarútvegsteymi Glitnis við hlið Kristjáns Þ. Davíðssonar framkvæmdastjóra.
KJARTAN Ólafsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Glitnir Securities í Osló, hefur tekið að sér að stýra alþjóðlegu sjávarútvegsteymi Glitnis við hlið Kristjáns Þ. Davíðssonar framkvæmdastjóra. Kjartan hóf störf hjá Glitni árið 1999 og var áður yfirmaður sjávarútvegs á markaðssvæði Glitnis á Norðurlöndum en flutti til Álasunds eftir yfirtöku Glitnis á KredittBanken árið 2005, en þaðan hefur hann leitt norska sjávarútvegsteymið. Síðustu tvö ár hefur Kjartan starfað í Glitnir Securites í Osló.