Káfað eða ekki? Rob Lowe með eiginkonu sinni, Sheryl, á Sundance-hátíðinni.
Káfað eða ekki? Rob Lowe með eiginkonu sinni, Sheryl, á Sundance-hátíðinni. — Reuters
JESSICA Gibson, barnfóstra sem vann eitt sinn fyrir leikarann Rob Lowe og eiginkonu hans Sheryl, segir Lowe hafa áreitt sig kynferðislega til fjölda ára.

JESSICA Gibson, barnfóstra sem vann eitt sinn fyrir leikarann Rob Lowe og eiginkonu hans Sheryl, segir Lowe hafa áreitt sig kynferðislega til fjölda ára. Hún hafi engu að síður haldið áfram störfum vegna ástar sinnar á börnum þeirra hjóna og þess að hún þurfti á starfinu að halda.

Gibson segir Lowe hafa káfað á sér nokkrum sinnum, frá því í september 2005 til janúar 2008. Hún vann fyrir hjónin með hléum í sjö ár, sagði upp 24. febrúar sl. „Ég hélt alltaf að hlutirnir yrðu öðruvísi þegar ég sneri aftur til starfa en svo var ekki,“ segir Gibson. Lowe hefur nú höfðað mál gegn henni og tveimur öðrum fyrrverandi starfsmönnum sínum og segir alla þrjá hafa reynt að kúga út úr honum 1,5 milljónir Bandaríkjadala í skiptum fyrir þagmælsku, þ.e. að hlaupa ekki í fjölmiðla með sögur af kynferðislegri áreitni leikarans. Lögmaður Lowes segir ásakanirnar fráleitar og ósannar.

Lowe hefur lögsótt aðra barnfóstru fyrir að ljúga upp á sig áreitni. Lögmaður hans segir Gibson aldrei hafa kvartað öll þau ár er hún vann á heimili Lowe-hjóna. Hún hafi gefið þær skýringar á uppsögn sinni að barnfóstrustarfið ætti ekki við sig. Lögmaður Gibson, Gloria Allred, segir Lowe hins vegar hafa höfðað mál á hendur henni eftir að hann komst að því að Gibson hygðist lögsækja hann. Með því hafi hann viljað hræða Gibson og fá hana til að falla frá kæru. Allred segir það ekki eiga eftir að gerast. Gibson fer fram á skaðabætur fyrir áreitnina.

Lowe á eitt kynlífshneyksli að baki, árið 1988 komst myndband af honum í ástaleik með tveimur konum í hendur fjölmiðla og kom nokkru síðar í ljós að önnur þeirra var aðeins 16 ára. Ferill hans beið mikinn hnekki vegna þessa en hann hefur náð sér á strik á seinustu árum, m.a. í þáttaröðinni West Wing .