Skipti Ökumenn þurfa að huga að dekkjaskiptum á næstunni.
Skipti Ökumenn þurfa að huga að dekkjaskiptum á næstunni. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÖKUMENN mega ekki vera á nagladekkjum eftir 15. apríl samkvæmt reglugerð en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun þó gefa fólki svigrúm til að skipta yfir á sumardekk fram að næstu mánaðamótum. Heimilt er að vera á nagladekkjum eftir 15.

ÖKUMENN mega ekki vera á nagladekkjum eftir 15. apríl samkvæmt reglugerð en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun þó gefa fólki svigrúm til að skipta yfir á sumardekk fram að næstu mánaðamótum.

Heimilt er að vera á nagladekkjum eftir 15. apríl ef snjór og hálka eru á vegum og mun lögregla taka mið af því.

Hins vegar beinir hún þeim tilmælum til ökumanna innan höfuðborgarsvæðisins að taka nagladekkin undan ef aksturinn er bundinn við höfuðborgarsvæðið fram að mánaðamótum.