Reykjavíkurborg hefur undirritað samning við Fjörefli ehf. um afnot af landspildu í Gufunesi til að koma upp afþreyingar- og þjónustumiðstöð. Fjörefli ehf.

Reykjavíkurborg hefur undirritað samning við Fjörefli ehf. um afnot af landspildu í Gufunesi til að koma upp afþreyingar- og þjónustumiðstöð. Fjörefli ehf. mun starfrækja ýmiss konar afþreyingarstarfsemi á svæðinu og einnig er fyrirhuguð æfingaaðstaða fyrir golfáhugamenn bæði innandyra og utan.

Á myndinni má sjá Eyþór Guðjónsson, framkvæmdastjóra Fjöreflis, Ólaf F. Magnússon borgarstjóra og Ingibjörgu Guðmundsdóttur frá Fjörefli undirrita samstarfssamninginn.