Þess vegna getur hinn frjálslyndi Jón Magnússon ekki lengur leyft sér að lyfta sér á vængnum og hugsa frjálst um evruna eins og forðum. Nú þarf hann jafnan að hnýta fyrirvörum við ræðu sína til að hafa Magnús góðan.

Þess vegna getur hinn frjálslyndi Jón Magnússon ekki lengur leyft sér að lyfta sér á vængnum og hugsa frjálst um evruna eins og forðum. Nú þarf hann jafnan að hnýta fyrirvörum við ræðu sína til að hafa Magnús góðan. Hið villta glit hins frjálsa strokuhests sem stirndi stundum úr augum hans í upphafi þings er horfið.

Það er kominn léttadrengur á skútuna, sem vill og fær að stýra fyrir formanninn. Þannig hefur Guðjón Arnar taumhald á villistóðinu. Það er stefna Magnúsar Þórs sem ræður varðandi ESB og fleira fylgir örugglega á eftir.

Össur Skarphéðinsson

eyjan.is/goto/ossur