UNGUR piltur, 16 til 17 ára að því er talið er, sem framdi vopnað rán í söluturni við Grettisgötu skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld, er enn ófundinn, að sögn lögreglunnar í Reykjavík.

Pilturinn réðst inn í verslunina vopnaður hnífi og hafði á brott með sér 60 til 100.000 krónur í reiðufé, dvd-diska og sígarettur. Hann var klæddur í hettupeysu og með rauðan tóbaksklút fyrir andlitinu.