Mugison og hljómsveitin Bloodgroup verða fulltrúar Íslendinga á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar. Fjölmiðlar hafa slúðrað um að Jónsi og félagar í Sigur Rós komi einnig fram á hátíðinni, en nú hefur fengist staðfest að það er ekki rétt.

Mugison og hljómsveitin Bloodgroup verða fulltrúar Íslendinga á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar. Fjölmiðlar hafa slúðrað um að Jónsi og félagar í Sigur Rós komi einnig fram á hátíðinni, en nú hefur fengist staðfest að það er ekki rétt. Sigur Rós verður samt á ferð um Evrópu í sumar og kemur meðal annars fram á Rock Werchter-hátíðinni í Belgíu og Southside-hátíðinni í Þýskalandi. afb