ALLSÉRSTÖK kvikmyndahátíð verður haldin í Árósum í Danmörku 5.-6. september nk., Dansk Lomme- film Festival 08 eða danska vasakvikmyndahátíðin 08.
ALLSÉRSTÖK kvikmyndahátíð verður haldin í Árósum í Danmörku 5.-6. september nk., Dansk Lomme- film Festival 08 eða danska vasakvikmyndahátíðin 08. Á hátíðinni verða sýndar kvikmyndir teknar með farsímum en blásið verður til samkeppni víða um Danmörku í dag í gerð slíkra kvikmynda og er hún ætluð ungu fólki, frá 12 ára aldri upp í 17 ára. Afraksturinn verður svo sýndur á hátíðinni og verður einnig boðið upp á kennslu á henni í gerð slíkra mynda. Ýmsar stofnanir og fyrirtæki styrkja hátíðina.