Norðmaðurinn Frank O. Reite, sem var einn af framkvæmdastjórum Glitnis, fékk 34 milljónir norskra króna, jafnvirði 508 milljóna íslenskra króna, þegar hann hætti störfum sl. haust.

Norðmaðurinn Frank O. Reite, sem var einn af framkvæmdastjórum Glitnis, fékk 34 milljónir norskra króna, jafnvirði 508 milljóna íslenskra króna, þegar hann hætti störfum sl. haust. „Ég er því sammála að þetta eru hræðilega miklir peningar,“ segir Reite við vefinn e24.no.

Reite keypti hlut í Glitni Property Holding þegar hann hætti í framkvæmdastjórn Glitnis og er þar stjórnarformaður. mbl.is